Jæja.... nýtt líf hófst hjá mér þann 1. júní sl. Eða öllu heldur
gamalt líf en ég flutti aftur í foreldrahús þann dag.
Já sjálfstæðisbarátta mín entist aðeins í tæp tvö ár og nú er ég
aftur orðin fullorðið barn sem býr í kjallaranum hjá p&m.
Veit ekki hversu lengi þetta ástand mun vara - a.m.k. út
sumarið en jafnvel aðeins lengur. Var heppin og fékk leigjanda
óvænt upp í hendurnar þannig að nú get ég sinnt ritstörfum og lesið
fyrir próf róleg í allt sumar.
Gee... it´s going to be so much fun 
En það góða við að flytja aftur heim og fá leigjanda er að
loksins dreif ég í að láta laga fullt af hlutum í íbúðinni góðu sem
ég hafði trassað mjög lengi, einfaldlega vegna þess að þeir bögguðu
mig ekki nógu mikið, þótt þeir hafi vissulega böggað mig. Þannig að
pípulagnir allar eru komnar í gott lag og verið er að laga ljós í
dag þannig að þetta er allt að koma. Eins og leigjandinn sagði -
gott að fá svona spark í rassinn og drífa loksins í hlutunum.
Annars rembist ég þessa dagana við að reyna að hefja ritstörf.
Það er meira en að segja það að koma sér í gírinn. Truflar mig líka
smá að umráðasvæði mitt minnkaði úr 62 m2 í ca. 20 m2 og
helmingurinn af dótinu mínu í ferðatöskum og allt í klessu. En ég
ætla að skrifa BA-ritgerð um forsetann og synjunarvald hans en á
eftir að ákveða nánar hvaða útgangspunkt ég vel. Hlaut mikla
gagnrýni fyrir val mitt á ritgerðarefni en so be it - atburðir
sumarsins 2004 voru í raun ástæða þess að ég ákvað að prófa
lögfræði fyrir það fyrsta. Síðan er stefnt á útskrift í október
nk.
Annars gengu prófin núna bæði vel og illa - skemmst er frá því
að segja að ég er laus við eignarréttarvandamálið sem ég var farið
að álíta óyfirstíganlegan hjalla í mínu lífi. Almennan my ass...
það er eignaréttur sem ber að óttast! 
En jæja... fleiri orð ætla ég ekki að hafa í bili. Skrifa e.t.v.
einhvern tímann aftur 
Kv. Þórhildur S.L.