It´s My Party and I Cry if I Want To
Annað nauðsynlegt
13.10.2007 11:19:41 / thslindal

Auglýst eftir myndavél

Jæja, maður er vaknaður hress og sprækur á laugardagsmorgni eftir frekar settlegt Októberfest í gærkvöldi enda fór ég bara snemma heim.

Hvernig fór ég samt að því að týna myndavélinni minni? Ég bara trúi ekki að ég sé búin að týna henni - keypt 26. apríl sl., líftími tæpt hálft ár? Fullt af myndum í henni... nei þetta getur bara ekki verið... var soldið að taka myndir í gær og hún var e-ð að ganga á milli manna en ég hélt ég hefði stungið henni í bakpokann.... en nei

Allavegna - hér með er auglýst eftir bleikri og silfurlitaðri Canon-myndavél. Ef einhver skyldi hafa hana í fórum sínum þá endilega hafa samband í síma 864-5324... (djísöss held ég virkilega að það beri e-n árangur að vera að auglýsa eftir henni á þessu bloggi hérna... jæja hef í það minnsta engu að tapa).

Kveðja frá Þórhildi S.L.


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 20:40:58 / thslindal

Skipt um framkvæmdastjóra sveitarfélags

Já dagurinn í dag var svo sannarlega viðburðarmikill í borgarpólitíkinni.

En án þess að ég ætli að fara að setja mig sérstaklega í spor þjóðfélagsrýnanda hér á þessu bleika bloggi mínu þá var bara soldið fyndið að í dag, akkúrat þegar þetta var að gerast, var ég í tíma í sveitarstjórnarrétti. Umfjöllunarefni dagsins í dag var framkvæmdastjóri sveitarfélags, sem hjá sveitarfélaginu Reykjavík ber heitið borgarstjóri. Í miðjum tíma var svo skyndilega ákveðið að skipta um framkvæmdastjóra sveitarfélags og horfðum við á það í beinni útsendingu í gegnum netið.

Get ekki annað sagt en viðburðir dagsins hafi verið afar viðeigandi í ljósi umfjöllunarefnis tímans. Ég á svo að skila 10 bls. ritgerð um framkvæmdastjóra sveitarfélags þann 1. nóv. Verð að segja að atburðir dagsins hafa komið mér í aðeins meira stuð og ég er aðeins meira að nenna þessu, jafnvel þótt umfjöllunarefni ritgerðarinnar muni ekki varða málefni Orkuveitu Reykjavíkur, REI og GGE beinlínis.

Jeeeheee... er ekki bara gott að búa í Reykjavík? Eða hvað?  

Kv. frá Þórhildi S.L.


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 15:52:43 / thslindal

Heimskupör

Jæja, 

Heimskupör gærdagsins voru að setja íþróttaskó í þvottavél. Einhvern veginn hélt ég í sakleysi mínu að það væri í lagi, a.m.k. hafa einhverjar vinkonur mínar þvegið shelltoe-adidas skó í þvottavél með ágætis árangri... eða ég held það... :$

En jæja þegar þvottinum var lokið þá blöstu við mér skór annars vegar og skóbotnar hins vegar... æ, æ. Þráinn skóari úrskurðaði í morgun um að skórnir væru búnir að vera, ekki hægt að líma... heh :^)

Þessi mistök kostuðu mig 12.990 kr. Og btw... hvenær urðu allir hlaupaskór ógeðslega ljótir... langaði ekki í neina af þessum skóm sem ég kíkti á í morgun og endaði á því að kaupa þá minnst-ljótu sem ég fann. Til allra hlaupaskóhönnuða heimsins ef þeir lesa þessa síðu: Nenniði að hanna eitthvað flott en ekki eitthvað sem grætir mann af ljótleik. Takk fyrir.

Annars verð ég flott í ræktinni á eftir, hah 8| Uppstríluð í nýju outfitti sem kostaði mig svo mikið að það er bara sorglegt. Eins gott að ég verði nú dugleg að mæta svo ég fái nú eitthvað fyrir þessa gríðarlegu fjárfestingu sem ég er búin að leggja út í.

Loforð dagins: Ætla að koma 2. tbl. Úlfljóts í prentun... þótt ég verði að vaka í alla nótt, sver það!!!

Kv. frá Þórhildiþór fitness-queen :$


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 14:15:27 / thslindal

Haust 2007

Jæja þá er komið haust og allt gott um það að segja.

Mér finnst þetta alltaf skemmtilegur tími á haustin þegar skólinn byrjar og enn er langt í næstu próf og maður er svona sæmilega ligeglad með lífið og tilveruna.

Sumarprófin búin, einkunn fyrir BA-ritgerð komin í hús og hér með kunngjört að ég er komin með BA-próf í lögfræði og hef hafið nám á MA-stigi... ekkert nema fjör smjör! Er ekkert smá sátt við að sumarplanið gekk upp og mér tókst að redda hlutunum fyrir horn. 

Stend annars í ströngu í útgáfustarfsemi þessa dagana. Stefni á að setja 2. tbl. Úlfljóts í prentun nú í vikunni og vonandi gengur það allt að óskum enda er endaspretturinn við vinnu þess blaðs búinn að vera nokkuð drjúgur. Já og svo er það blessaða afmælisritið. Stefnan er tekin á að það verði komið út á hátíðisdegi Úlfljóts þann 2. nóv. nk. Ég á væntanlega eftir að naga mig í handarbökin yfir því að vera koma með opinberar yfirlýsingar sem ég veit náttúrulega ekki 100% hvort eigi eftir að standast. En við munum a.m.k. reyna að gera allt sem í okkar valdi stendur til að blaðið verði komið út þá. Btw. þetta verður 3. tbl. en ekki 4. tbl. 2007 - change of plans ;)

Annars skellti ég mér í Þingvallaferð Orators á föstudagskvöldið fjórða og væntanlega síðasta árið í röð. Fann aðeins til aldurs míns þegar ég var að ræða við krúttlega nýnema úr MH fædda 1987 og 1988 og dugnaðarstelpur úr Menntaskólanum við Hraðbraut fæddar 1989. Jebb... I´m getting old. Annars heppnaðist ferðin öll vel og bara góð stemmning yfirhöfuð þrátt fyrir að menn hafi gubbað í rútum og svona. Í gær lá ég svo í Nip/Tuck sem er nýjasta uppáhaldið mitt. Skemmtilega sjúkir þættir með öllum þeim elementun sem ég tel að prýði góðan sjónvarpsþátt. Love it!!! :lol:

En nú er það bara vinna vinna... best að halda áfram með smjörið.

Bestu kveðjur frá

Þórhildi S.L.


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.08.2007 13:15:53 / thslindal

Note to self

... alltaf, alltaf að fara til tannlæknis um leið og þú hefur minnsta grun um að þú sért með tannskemmdir, því einn góðan veðurdag siturðu í sakleysi þínu að slafra í þig hádegismatinn og það brotnar þriðjungur af jaxli sem þú týnir í matnum þínum.

Síðan þegar þú ætlar að panta neyðartíma hjá Tannsa leyfir hann sér að vera í fríi þannig að þú þarft að þjást alla helgina og hugsanlega aflýsa langþráðum nammidegi :^)

Þetta er ekki sanngjarnt :(

Kv. frá Þórhildi og Karíusi og Baktusi sem hafa tekið sér bólfestu í líkama hennar

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 00:01:11 / thslindal

Krummaskuðs-stuð

Góða kvöldið,

Jæja allt gengur vel og maður í stakk búinn til að setjast niður og læra fyrir sumarpróf. BA-ritgerðin er nánast tilbúin en ég á enn eftir að ganga frá 2. tbl. Úlfljóts þetta árið og á fullu að því... ergilegt að vera komin mjög langt með frágang en eiga samt slatta eftir og þurfa að læra fyrir próf... tja, nú er að duga eða drepast ef ég ætla að ná þessu fyrir haustið. Vil því engu lofa með útgáfudag þessa blessaða eintaks nema bara að það verður bráðum.

Var að koma úr smá sumarfríi með foreldrunum (sem ég er þegar byrjuð að hafa samviskubit yfir að hafa tekið.) Vorum í bústað norður í landi og keyrðum í öll krummaskuð á norðurausturlandi. Keyrðum auðvitað til Akureyrar og Húsavíkur og fórum einn daginn hring þar sem við kíktum við á Kópaskeri, Raufarhöfn, Þórshöfn, Bakkafirði og Vopnafirði. Aðra daga kíktum við til Svalbarðseyrar, Dalvíkur, Grenivíkur, Hauganess, Hjalteyrar, Árskógsstrandar og Hríseyjar. Verst við náðum ekki til Grímseyjar, langar alveg hrikalega þangað.

Datt í hug nýtt mission í lífinu - að dekka öll krummaskuð á landinu á heilli viku og þá meina ég að stoppa í hverju einu og einasta skuði á landinu með a.m.k. fimmtíu manns á íbúaskrá. Gæti maður ekki fengið viðtal í blaði út á það? Ef maður reyndi t.d. að setja met með því að heimsækja öll skuðin á sem stystum tíma og þyrfti að eyða a.m.k. hálftíma á hverjum stað, hella í sig einum kaffibolla eða svo og keyra helstu götur.

En ég hef mikinn áhuga á skuðum úti á landi - afsakið ef ég mógða einhvern með orðinu "krummaskuð" en mér til varnar þá finnst mér þau alveg dásamleg.

Bless í bili,

Þórhildur S.L.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 13:34:08 / thslindal

Ritstjörf

Góðan daginn,

Maður stritast við að sitja á tómri lesstofu og klambra saman BA-ritgerð. Á að skila drögum á morgun og sveiflast á milli þess að þykja þetta ægilega fínt hjá mér og að vita ekkert hvað ég er að gera. Reyni að láta hugann reika aftur til sumarsins 2004 þegar hasar var í þjóðlífinu og ekki um annað rætt en fjölmiðlafrumvarp, valdníðslu ríkisstjórnarinnar og synjunarvald forseta.

Nú þremur árum síðar er ég að skrifa um þetta BA-ritgerð... merkilegt hvað ég hafði miklu, miklu meiri áhuga á þessu fyrir þremur árum heldur en núna. En ég held það helgist náttúrulega bara af því að ég "á" og "verð" að skila BA-ritgerð ef ég ætla að útskrifast og fá að fara í master. Þetta er svona eins og að taka til -ágætt ef maður tekur þá ákvörðun af fúsum og frjálsum vilja en það leiðinlegasta í heimi ef "einhver" (hmmm... hver ætli það sé?) skikkar mann til þess.

Kostir við að vera fluttur aftur heim: Betra kaffi, meira úrval dagblaða, niðurskornir ávextir og hollur heimatilbúinn matur. Greiðari afnot af bifreið og jafnvel félagsskapurinn :^)

Ókostir: Þetta venjulega tuð og nagg. Að finnast ég vera fullorðið barn. Minna pláss, föt enn í ferðatöskum og óvirkt vídeó. :$

Held ég geti samt ekkert kvartað og hef það bara ljómandi gott. :haha:

Well - back to work.

Kv. Þórhildur litla

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 10:43:54 / thslindal

Nýtt líf... eða öllu heldur gamalt

Jæja.... nýtt líf hófst hjá mér þann 1. júní sl. Eða öllu heldur gamalt líf en ég flutti aftur í foreldrahús þann dag.

Já sjálfstæðisbarátta mín entist aðeins í tæp tvö ár og nú er ég aftur orðin fullorðið barn sem býr í kjallaranum hjá p&m. Veit ekki hversu lengi þetta ástand mun vara - a.m.k. út sumarið en jafnvel aðeins lengur. Var heppin og fékk leigjanda óvænt upp í hendurnar þannig að nú get ég sinnt ritstörfum og lesið fyrir próf róleg í allt sumar.

Gee... it´s going to be so much fun :$

En það góða við að flytja aftur heim og fá leigjanda er að loksins dreif ég í að láta laga fullt af hlutum í íbúðinni góðu sem ég hafði trassað mjög lengi, einfaldlega vegna þess að þeir bögguðu mig ekki nógu mikið, þótt þeir hafi vissulega böggað mig. Þannig að pípulagnir allar eru komnar í gott lag og verið er að laga ljós í dag þannig að þetta er allt að koma. Eins og leigjandinn sagði - gott að fá svona spark í rassinn og drífa loksins í hlutunum.

Annars rembist ég þessa dagana við að reyna að hefja ritstörf. Það er meira en að segja það að koma sér í gírinn. Truflar mig líka smá að umráðasvæði mitt minnkaði úr 62 m2 í ca. 20 m2 og helmingurinn af dótinu mínu í ferðatöskum og allt í klessu. En ég ætla að skrifa BA-ritgerð um forsetann og synjunarvald hans en á eftir að ákveða nánar hvaða útgangspunkt ég vel. Hlaut mikla gagnrýni fyrir val mitt á ritgerðarefni en so be it - atburðir sumarsins 2004 voru í raun ástæða þess að ég ákvað að prófa lögfræði fyrir það fyrsta. Síðan er stefnt á útskrift í október nk.

Annars gengu prófin núna bæði vel og illa - skemmst er frá því að segja að ég er laus við eignarréttarvandamálið sem ég var farið að álíta óyfirstíganlegan hjalla í mínu lífi. Almennan my ass... það er eignaréttur sem ber að óttast! 8|

En jæja... fleiri orð ætla ég ekki að hafa í bili. Skrifa e.t.v. einhvern tímann aftur ;)

Kv. Þórhildur S.L.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 13:33:11 / thslindal

Boring manneskja

Ég hef komist að því að í prófum breytist ég í afar boring manneskju.

Manneskju sem vill helst bara sitja við allan daginn og halda áætlun.

Manneskju sem nennir helst ekki að borða, hvað þá taka matarhlé og helst ekkert mikið að kjafta. Manneskju sem getur ekki farið í sund með vinkonu sinni lengur því nú þarf Frk. Boring að halda sína áætlun og verður að fara ein ... allt annað tefur og truflar.

Manneskju sem djammar ekki í prófum og dettur ekki í hug að fá sér einn eftir próf... manneskju hverrar djamm breytist í vídeógláp og ofát á sælgæti einu sinni í viku NB ... manneskju sem meikar lágmarks-félagsleg samskipti í þessum aðstæðum, hvæsir á foreldra sína og er eiginlega varla mönnum sinnandi af stressi í þessu ástandi.

Gott að þessu ástandi er lokið eftir 3 og hálfan dag. Vonandi mun ég eiga einhverja vini eftir :$

Kv. Þórhildur Boring


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 14:14:31 / thslindal

Ort um hefð

Jæja, andinn kom yfir mig rétt í þessu og ég ákvað að yrkja lítið ljóð um hefð:

Hefð er það kallað

þegar tiltekin umráð (eftir atvikum eru þar með talin not eða ráðstöfun með löggerningi)

verðmætis (hlutar)

sem varað hafa í ákveðinn tíma

og uppfyllt tiltekin önnur skilyrði

eru í sjálfu sér nægileg heimild

fyrir þeim eignarréttindum,

sem umráðin benda til.

 

Ég er að spá í að láta það fljóta með, ef það kemur hefðarspurning á eignarréttarprófinu í von um að fá kannski eins og eitt, tvö aukastig

 

Bestu kveðjur frá

Skáldinu mikla

Þórhildiþór


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 12:06:03 / thslindal

Allt verður þá er þrennt er

Jæja,

Þá sest maður niður og reynir við eignaréttinn í þriðja sinn. Soldið erfitt eftir gærdaginn sem einkenndist af almennri bugun eftir próf í refsirétti. Ekki uppáhaldsaðstæður manns að horfa upp á 30% spurningu sem maður kann í raun ekkert í. Spurning hvort maður lendir fimmu eða sexu megin en ég er farin að hallast að 5,5.

En spyrjum að leikslokum, maður getur nú sjálfum sér um kennt þegar maður lærir í raun ekkert alla önnina og ætlar svo að redda sér á tveimur vikum. En að horfa upp á að fara í þrjú sumarpróf í staðinn fyrir tvö, tja... hvað á maður að segja. Þá fer róðurinn að þyngjast.

En fátt er svo með öllu illt. Það er hlýtt úti þótt það sé vindur. Ég á ný gleraugu og nýtt ilmvatn. Ég er líka á leiðinni til NEW YORK CITY með vinkonum mínum eftir prófin þannig að það er margt sem maður getur verið ánægður með þótt maður klúðri einu prófi til eða frá.

En nú er að gíra sig upp í þriðja skiptið og rústa þessum eignarétti. Eignaréttur.... here I come!!! :haha:

Kv. Þórhildur prófadís


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 13:28:38 / thslindal

En hvað ef...?

Nú er verið að kæra Coce-Zero auglýsingarnar til jafnréttisráðs.

Ég fór bara að spá í það... hvað ef mann langar rosalega til að smakka þetta nýja kók? Ég meina verður maður ekki grýttur eða e-ð ef maður kaupir sér það?

Ég sem kvenmaður þori a.m.k. ekki fyrir mitt litla líf að kaupa mér smakk :$

Einhverjar tillögur?

Kv. Þórhildur þyrsta


» 12 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 21:02:45 / thslindal

Vandamálin leyst á hálftíma

Góða kvöldið,

Já í dag leysti ég vandamál á hálftíma. Afhverju vex manni það eitthvað í augum að kaupa sér ný gleraugu? Er það kannski vegna þess að þau eru rándýr eða vegna þess að þau koma til með að sitja á nefinu á manni hugsanlega næstu sjö árin - eins og núverandi gleraugu - eða er maður bara plain latur? :$

Allavegna í dag dreif ég bara í þessu. Búin að ætla mér að endurnýja gleraugun lengi vel og þá sérstaklega eftir að ég bakkaði yfir þau úti í Þýzkalandi 2003. (Já taskan mín lá við afturhjól bílsins og ekki tók ég eftir því og dreif mig bara af stað.... gleraugun lifðu af en eru búin að vera skökk og skæld síðan.) :^)

Þar sem maður kúrir yfir skruddum allan daginn núna tók ég eftir því að gleraugun tóku í sífellt auknum mæli að síga fram á nef mér og var mér nóg boðið í dag þegar ég þurfti að beinlínis að halda þeim kyrrum á sínum stað :evil:

Þannig að nú er betri gleraugnatíð í vændum með blóm í haga en herlegheitin verða til frumsýningar í næstu viku... :haha:

Kv. Þórhildur gleraugnaglámur (eða gámur? Hmmm?)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.04.2007 18:10:56 / thslindal

Úff

... ef ég villist inn á Barnaland.is is er það merki um djúpstæðari leiða en nokkru sinni fyrr...

somebody help me please :^)

Kv. Þórhildur (sem er með námsleiða á háu stigi)


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 19:00:43 / thslindal

La dí da...

... mér leiðist :$

 Að lesa um mismunandi ásetningsstig í refsirétti II er ekki eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert... ég þjáist af neikvæðri afstöðu til prófs og vil helst láta allt þetta drasl mér í léttu rúmi liggja :whut:

Það er eitthvað með vorönn... ég hef komist að því að það bara er ekki hægt að læra heima á vorönn... reyndi það í fyrra en klúðraði... lofaði svo bót og betrun en er að klúðra aftur... er það eitthvað við aukna birtu, er ekki hægt að einbeita sér í henni??? 8|

En ef einbeitingin kikkar inn skal ég skrifa færslu um það. Heh... já það er allt að gerast þessa dagana ;) Er reyndar hætt við að fara í eitt próf þannig að þetta á nú alveg að verða frekar ljúft og löðurmannlegt núna í vor... ætla að fá 9 í eignarétti enda Hildur Sunna og Guðrún Edda búnar að lofa að gera handa mér heimatilbúna fálkaorðu þegar ég hef lokið því afreki af. Já allt verður sko þegar þrennt er - I´ll show´em!!!

Heimspekistúlknahittingur í kvöld. Já ég lærði heimspeki í mínu fyrra lífi en er búin að gleyma öllu sem ég lærði. En ég eignaðist ágætis vinkonur þar. Fyrir tilstilli duglegra einstaklinga úr þeim hópi hittumst við af og til þótt það séu fjögur ár síðan flestar okkar kláruðu. Helmingurinn kominn með börn og hinn helmingurinn kominn í frekara nám... tvær í lögfræði 8) Já það verður víst e-r bið á börnunum hjá okkur.

Fleira var það ekki í bili.

Góðar stundir,

Kv. frá Þórhildiþór

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10